Skilmálar
Upplýsingar um seljanda
Súk.is er rekið af Fensalir ehf. Kt. 690798-2129. Súk áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta við pantanir án fyrirvara. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðsla
Hægt er að greiða fyrir vörur með greiðslukorti í gegnum greiðslugátt Landsbankans.
Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Afhending vöru
Hægt er að sækja pantanir í sýningarrými í Síðumúla 13 - bakhús, skv. samkomulagi.
Einnig er hægt að velja sendingu með Eimskip eða Dropp um allt land.
Allar pantanir eru afgreiddar á 0-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp réttar upplýsingar við pöntun. Af öllum pöntunum dreift af Dropp eða Eimskip gilda skilmálar þess fyrirtækis.
Vöruskil
Vörur sem pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta gildir þó ekki um vörur sem eru sérpantaðar eða útsöluvörur. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu nema vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þ.e. ef vöru er skilað þegar hún er á tilboði eða útsölu er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Súk.
Hægt er að skila smávörum gegn gjaldi í gegnum vöruskil Dropp hér.
Sé gallaðri vöru skilað er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Útsölur og vöruskil:
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Persónuupplýsingar
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um. Sjá skilmála um vafrakökur.
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
