Framleiðandinn sem við skiptum við hefur lagt mikla vinnu í að þróa og breyta aldagamalli hönnun og fegurð í fallega muni sem nota má í daglegu nútímalífi
Leirinn sem notaður er í vöruna er hitaþolinn hvítur leir sem ólíkt rauða marokkóska leirnum brotnar síður úr og springur.
Þessi dásamlega vara þolir heitan mat, má fara í uppþvottavél og örbylgjuofn og leirinn inniheldur ekkert blý.